news

Sverrir Páll 6 ára.

25 Feb 2019

Á fimmtudaginn í síðustu viku eða þann 21. febrúar varð hann Sverrir Páll 6 ára. Hann valdi að bjóða vinum sínum upp á popp í afmælisveislunni sinni enda elskar hann popp að eigin sögn.

Þegar allir höfðu borðað á sig gat af poppi, þá fórum við í afmælislestina um húsið og enduðum svo inni í sal þar sem hann ákvað að bjóða á ball. Þar var hörku stuð eins og við var að búast. Að lokum fóru svo allir í afmælishringinn þar sem við óskuðum afmælisbarninu til hamingju með afmælið.
Takk fyrir skemmtilega veislu kæri Sverrir Páll.

Myndir úr afmælinu koma inn fljótlega